1
Norðurlandaráðsþing fór fram í Reykjavík í lok október. Í tengslum við það var haldinn sérfræðingafundur með þátttakendum frá Norðurlöndunum og Þýskalandi þar sem fjallað var um launajafnrétti og virðismat kvennastarfa.
Á fundinum
2
Kertum verður fleytt á Reykjavíkurtjörn og á Minjasafnstjörninni á Akureyri þriðjudagskvöldið 9. ágúst til að minnast fórnarlamba kjarnorkuárásanna á Hírósíma og Nagasakí. Þetta verður 32. kertafleytingin hér á landi, en í ári er 71 ár liðið frá því kjarnorkusprengjum var varpað á japönsku borgirnar tvær. . Með kertafleytingunum er lögð áherslu á kröfuna á heim án kjarnorkuvopna. Friðarsinnar telja mikilvægt að komandi kynslóðir dragi lærdóma af kjarnorkuárásunum og tryggt verði að
3
Baráttudagur verkalýðsins er á föstudaginn kemur þann 1. maí og verða baráttufundir haldnir af því tilefni víða um land. yfirskrift fundarins í Reykjavík að þessu sinni er „Jöfnuður býr til betra samfélag ... í baráttukaffi í húsnæði sínu að Grettisgötu 89..
.
Dagskrá 1. maí 2015 í Reykjavík.
.
Kl. 13.00
4
í leikskólanum Hofi í Reykjavík.
Auk þess að hafa innleitt styttinguna á eigin leikskóla hefur Særún, ásamt öðrum reynslumiklum leikskólastjórum, aðstoðað stjórnendur á öðrum leikskólum borgarinnar og víðar um land við að innleiða styttingu vinnuvikunnar
5
heildarsamtakanna tveggja. Félagið er þegar með um 440 íbúðir í útleigu í Reykjavík, á Akranesi, í Þorlákshöfn og á Akureyri. Félagið er með um 240 íbúðir í byggingu og 374 til viðbótar á undirbúningsstigi.
Hægt er að kynna sér starfsemi Bjargs betur
6
Sjúkraliðafélag Íslands boðar allsherjarverkfall sjúkraliða hjá sveitarfélögum landsins, öðrum en Reykjavík, frá 4. apríl, náist ekki samningar fyrir þann tíma..
.
Þetta þýðir að sjúkraliðar sem vinna
7
Varða – rannsóknarstofnun vinnumarkaðarins hefur hlotið styrk úr Vísindasjóði Orkuveitu Reykjavíkur, VOR til að framkvæma rannsókn á stöðu foreldra á Íslandi með tilliti til möguleika þeirra til að samræma fjölskyldu- og atvinnulíf út
8
Viljayfirlýsing hefur verið undirrituð um uppbyggingu Bjargs á allt að 505 nýjum íbúðum í Reykjavík. . . Sjá ... árum verður lokið við að uppfylla viljayfirlýsingu við félagið frá 12. mars 2016 um 1.000 íbúðir í Reykjavík. Bjarg hyggst byggja um 100 íbúðir í Reykjavík á ári eftir það til að mæta þörf sinna félaga. Reykjavíkurborg hefur þegar veitt Bjargi
9
Það styttist í haustið og þar með í að næstu námskeið fyrir trúnaðarmenn aðildarfélaga BSRB fari af stað hjá Félagsmálaskóla alþýðu. Fyrsti hluti trúnaðarmannanámsins verður kenndur dagana 23. og 24. september og því um að gera að skrá sig sem fyrst.
Hver hluti námsins er kenndur á 16 klukkustundum sem deilast á tvo daga. Þeir trúnaðarmenn sem ekki hafa setið námskeið Félagsmálaskóla alþ
10
Samkomulag hefur náðst milli BSRB og allra viðsemjenda bandalagsins, ríkisins, Sambands íslenskra sveitarfélaga og Reykjavíkurborgar, um útfærslu á styttingu vinnutíma starfsmanna í dagvinnu. Næsta verkefni í kjaraviðræðum bandalagsins er að útfæra styttingu vinnuvikunnar fyrir vaktavinnufólk.
„Sú útfærsla sem sátt hefur náðst um varðandi styttingu vinnutíma dagvinnufólks hefur verið samþykkt með fyrirvara um að bandalagið nái ásættanlegri niðurstöðu í öðrum málum sem eftir er að leys
11
Heldur hefur þokast í átt að samkomulagi í kjaraviðræðum BSRB við viðsemjendur. Áfanga hefur verið náð í umræðum um styttingu vinnuvikunnar í samtali við ríkið og vonir standa til að sambærileg niðurstaða náist í viðræðum við sveitarfélögin.
Samningseiningar BSRB funduðu fyrir hádegi í dag til að ræða stöðuna í viðræðunum. Á fundinum, sem formenn aðildarfélaga og aðrir sem koma að samningsvinnunni sátu, var ákveðið að halda áfram á þeirri braut sem lagt hefur verið upp með í vinnunni
12
Samninganefnd BSRB félaganna þriggja – SFR, SLFÍ og LL – á fund með samninganefnd ríkisins í dag kl. 13 þar sem haldið verður áfram að ná saman um nýjan kjarasamning. Önnur vinnustöðvun SFR og SLFÍ hóst á miðnætti og mun standa til miðnættis á þriðjudag.
Samkvæmt því sem formenn SFR, SLFÍ og LL hafa sagt um gang viðræðnanna um helgina hefur eitthvað þokast áfram þótt enn sé nokkuð í land.
Félagsmenn umræddra félaga ætla í fyrramálið, þriðjudaginn 20. október, að safnas
13
Rætt var við Helgu Jónsdóttur framkvæmdastjóra BSRB um styttingu vinnuvikunnar í þættinum Samfélagið á Rás 1 í gær. Í viðtalinu var fjallað almennt um styttingu vinnuvikunnar og nýhafið tilraunaverkefni hjá Reykjavíkurborg þar um en Helga er fulltrúi BSRB í stýrihópi um verkefnið. .
Helga sagði meðal annars frá því að vinnuvikan væri mun styttri í þeim löndum sem við berum okkur helst við eða u
14
Ávinningurinn af því að stjórnvöld bregðist við niðursveiflu með fjárfestingu í greinum opinberrar þjónustu í heilbrigðis-, félags- og menntakerfinu gæti verið meiri en af fjárfestingu í vegagerð og byggingariðnaði samkvæmt nýrri rannsókn.
Þegar dregur saman í efnahag þjóða og atvinnuleysi eykst verður samdráttur í tekjum ríkissjóðs og halli eykst. Oft er brugðist við með niðurskurði í opinberri þjónustu og greiðslum frá ríkinu eins og almannatryggingum og barnabótum. Sú leið veldur o
15
Starfsmennt hefur opnað fyrir skráningu í fagnám í umönnun fatlaðra sem hefst í haust. Námið er kennt í vendikennslu þannig að nemendur hafa aðgang að námsefninu á netinu hvar og hvenær sem er.
Markmið námsins er að auka færni og þekkingu námsmanna á aðstæðum og þörfum fatlaðs fólks til að efla lífsgæði þeirra og virkni. Í náminu er lögð áhersla á sjálfseflingu, lífsgæði og réttindi fatlaðs fólks með því að veita þeim viðeigandi þjónustu, að því er fram kemur í
16
Árið 2020 reyndi mikið á hæfni einstaklinga og getu þeirra til að finna nýjar lausnir á vandamálunum sem setti hugmyndir um hæfni til framtíðar í nýtt ljós fyrir marga, sagði Guðfinna Harðardóttir, framkvæmdastjóri Starfsmenntar á Menntadegi BSRB í dag.
Þar fjallaði hún meðal annars um hvernig COVID-19 faraldurinn hafi varpað ljósi á mikilvægi hæfniþátta sem Alþjóða efnahagsstofnunin hafi talið mikilvæga fyrir vinnandi fólk að tileinka sér fyrir árið 2025. Þar má til dæmis nefna aðlög
17
Veikindi tengd kulnun og streitu hafa aukist verulega á undanförnum árum með tilheyrandi kostnaði fyrir einstaklinga og samfélagið allt. Við þessu verður að bregðast með forvörnum og með því að tryggja fólki hvíld.
Fimmti hver starfsmaður í opinbera geiranum í Svíþjóð er með kulnunar- eða streitueinkenni. Það er gríðarlega hátt hlutfall og hefur tvöfaldast á aðeins fimm árum. Hér á landi skortir yfirsýn yfir ástæður og fjölda veikindadaga en engin ástæða er til að ætla annað en aðstæð
18
Slæm staða heilsugæslunnar og Landspítalans er bein afleiðing þess kerfis sem verið hefur við lýði hér á landi undanfarna áratugi, segir Birgir Jakobsson landlæknir. Hann fagnar því að fjölga eigi heilsugæslustöðvum á höfuðborgarsvæðinu um þrjár og segir virkilega alvarlegt ef uppbygging Landspítalans tefjist enn vegna deilna um staðsetningu spítalans. .
Birgir var gestur Velferðarnefndar BSRB á fimmtudag. Hann fór yfir stöðu heilbrigðismála hér á landi og þær leiðir sem hann telur fæ
19
Konur í stéttastríði er yfirskrift fundar sem haldinn verður á alþjóðlegum baráttudegi kvenna fyrir friði og jafnrétti á morgun, þriðjudaginn 8. mars. Fundurinn verður haldinn í Iðnó og hefst klukkan 17.
Mælendur á fundinum verða þær Sólveig Anna Jónsdóttir, Christina Milcher og Jónína Björg Magnúsdóttir. Þá mun Guðrún Hannesdóttir lesa ljóð og Ásdís María Viðarsdóttir taka lagið. Kynnir verður Kolbrún Halldórsdóttir.
Við hvetjum félaga í aðildarfélögum BSRB til að fjölmenna á f
20
Fjöldi launafólks í Finnlandi hefur í dag lagt niður störf til að mótmæla miklum niðurskurði ríkisstjórnarinnar þar í landi. Almenningssamgöngur hafa víða legið niðri og hafnir hafa verið lokaðar svo dæmi sé tekið. Þá hefur þurft að aflýsa nokkrum flugferðum vegna verkfallsins.
Alls er talið að um 30 þúsund manns hafi safnast saman fyrir framan aðalbrautarstöðina í Helsinki þar sem stærsti einstaki mótmælafundurinn fór fram. Viðræður um nýja kjarasamninga fóru nýverið út um þúfu