BSRB hefur fengið til umsagnar ofangreint frumvarp sem felur í sér útvíkkun á lögum um sorgarleyfi með þeim hætti að lagt til að foreldri, í skilningi laga um sorgarleyfi, sem missir maka sinn eigi rétt á sorgarleyfi eða sorgarstyrk í allt að sex mánuði. Samkvæmt gildandi lögum getur foreldri aðeins átt rétt á sorgarleyfi eða sorgarstyrk vegna barnsmissis, andvanafæðingar eða fósturláts.
Með setningu laga um sorgarleyfi nr. 77/2022 var foreldrum tryggt svigrúm til sorgarúrvinnslu í kjölfar barnsmissis og eftir atvikum stutt við systkini við að aðlagast breyttum aðstæðum. Einnig er lögunum ætlað að auka líkur á að foreldrar geti átt farsæla endurkomu á vinnumarkað og tekið virkan þátt í samfélaginu að nýju í kjölfar slíks áfalls.
BSRB telur rétt og eðlilegt að lög um sorgarleyfi nái einnig til þess þegar foreldri missir maka sinn og að þannig verði stutt við eftirlifandi maka og börn með sama markmiði og lög um sorgarleyfi gera í dag.
Með vísan til framangreinds styður BSRB efni frumvarpsins.
Fyrir hönd BSRB
Hrannar Már Gunnarsson
lögfræðingur