BSRB styður þær breytingar sem lagðar eru til á ákvæðum um veikindi á meðgöngu eins og þær eru settar fram í frumvarpi. Jafnframt gerir BSRB ekki athugasemdir við að réttur vegna fjölburafæðinga sé aukinn. BSRB gerir þó athugasemdir við útfærslu á þeim breytingum sem koma fram í 1. og 3. gr. frumvarpsins og varða breytingar á 15. og 34. gr. laga 144/2020.
Núverandi löggjöf gerir ráð fyrir því að foreldar eigi sameiginlegan rétt á lengingu fæðingarorlofs og rétti til fæðingarstyrks um þrjá mánuði umfram hvert barn sem fæðist, er ættleitt eða tekið í fóstur. Með breytingunni er lagt til að lengja sameiginlegan rétt foreldra í 6 mánuði. BSRB leggur áherslu á að þeim rétti sé jafnt skipt á milli foreldra, þannig að hvort foreldri um sig eigi sjálfstæðan þriggja mánaða rétt fyrir hvert barn umfram eitt. Sú leið samrýmist mun betur því tvíþætta markmiði fæðingarorlofslaganna, sbr. 2. gr. laganna, sem er að tryggja börnum samvistir við báða foreldra sem og að gera foreldrum kleift að samræma fjölskyldu- og atvinnulíf. Er það einnig í samræmi við almennu ákvæðin um skiptingu orlofs milli foreldra í löggjöfinni, 8. gr. og 25. gr.
Reynslan af íslenska fæðingarorlofskerfinu sýnir að almennt taka feður fæðingarorlof í samræmi við sinn sjálfstæða rétt og framselja sameiginlega réttinn til móðurinnar. Þetta má sjá á gögnum Fæðingarorlofssjóðs, en fyrir lengingu fæðingarorlofs árið 2020 tóku feður að meðaltali um þrjá mánuði en mæður í kringum sex. Rétturinn var þá 9 mánuðir, þrír mánuðir fyrir hvort foreldri og þriggja mánaða sameiginlegur réttur. Það sama sjáum við í dag, eftir að orlofið var lengt í áföngum í 12 mánuði þar sem 6 vikur eru framseljanlegar milli foreldra, feður taka rúma fjóra mánuði á meðan mæður taka rúma 7.[1] Þá sýnir rannsókn fjármála- og efnahagsráðuneytisins á tekjubreytingum kynjanna í kringum fæðingu barna að ráðstöfunartekjur kvenna lækka að meðaltali um 30-40% á fyrsta ári eftir fæðingu barns og eru enn um 20% lægri þegar barn er tveggja ára. Tekjur feðra lækka um 3-5% við fæðingu barns en verða fljótt þær sömu og áður.[2] Mikilvægt er að stjórnvöld og löggjafinn taki tillit til þessara staðreynda og hafi markmið fæðingarorlofslaga einnig í huga.
Fæðingarorlofskerfið er hornsteinn jafnréttis, bæði á vinnumarkaði og í samfélaginu. Jöfn skipting orlofs stuðlar að því að því að fjarvera beggja foreldra frá vinnumarkaði vegna barneigna verði jafn löng og áhrifin af tímabundnu brotthvarfi af vinnumarkaði sambærileg. Það er einnig mikilvægt til að tryggja jafna möguleika foreldra til samveru með barni sínu og þátttöku í uppeldi barna og heimilishaldi.
Fyrir hönd BSRB,
Dagný Aradóttir Pind, lögfræðingur
[1] Ársskýrsla Vinnumálastofnunar 2023: https://downloads.ctfassets.net/8k0h54kbe6bj/1HVND5M6epquYcWil7coek/75d6fad1f057cf4badc95aa499d5d364/arsskyrslur_2023.pdf
[2] Skýrsla innviðaráðherra um kostnað foreldra við að brúa bilið frá fæðingarorlofi fram að dagvistun, samkvæmt beiðni: https://www.althingi.is/altext/154/s/2172.html