Málefnastarf á 47. þingi BSRB

Eitt meginverkefni þings BSRB felst í mótun áherslna bandalagsins með gerð stefnu til næstu þriggja ára eða þar til næsta þing er haldið. Stefnan er grundvöllur alls starfs bandalagsins næstu árin og forsenda þeirrar samstöðu sem nauðsynleg er til að ná fram markmiðum í þágu félagsfólks aðildarfélaga BSRB.

Í framhaldi er svo stefnunni fylgt eftir með fjölbreyttum hætti.

Á þingi BSRB er því gefinn góður tími til málefnastarfs í fjórum hópum þar sem sem þingfulltrúar móta stefnu BSRB og ályktanir. Fyrirkomulag starfs allra hópanna er með sama hætti og er markmið þeirra m.a. að fræða þingfulltrúa um efni sem er til umfjöllunar í stefnu BSRB, dýpka umræðu og móta áherslur bandalagsins í einstökum málum.

Hver málefnahópur fær til sín 3-4 sérfræðinga á fjölbreyttum sviðum til að halda erindi. Í framhaldi erindanna er hópavinna hjá þingfulltrúum með þjóðfundafyrirkomulagi þar sem öllum þingfulltrúum gefst kostur á að koma sjónarmiðum sínum á framfæri og skiptast á skoðunum við borðfélaga sína og málefnahópinn í heild sinni. Kynningar sérfræðingana má sjá hér fyrir neðan og verða þær birtar fljótlega.

Málefnahóparnir fjórir fjalla um:

  • Kjaramál
  • Velferðarmál
  • Jafnrétti og jöfnuð
  • Framtíðarvinnumarkaðinn

 

Málefnahópur um kjaramál

Í málefnahópi um kjaramál er fjallað um

  • Efnahags- og skattamál
  • Endurmat á störfum kvenna
  • Styttingu vinnuvikunnar
  • Lífeyrismál og almannatryggingar

 

Eftirtaldir sérfræðingar voru með fjölbreytt og upplýsandi erindi. Hér má sjá kynningar þeirra:

  • Huld Magnúsdóttir, forstjóri Trygginastofnunar ríkisins
    • Kynning hennar um nýtt örorkulífeyriskerfi birtist síðar
  • Helga Jónsdóttir skrifstofustjóri skrifstofu skattamála í fjármálaráðuneytinu
    • Kynning hennar birtist síðar
  • Herdís Steingrímsdóttir dósent í hagfræði við Copenhagen Business School
    • Kynning hennar birtist síðar

 

Málefnahópur um velferðarmál

Í málefnahópi um velferðarmál er fjallað um:

  • Heilbrigðismál
  • Húsnæðismál
  • Almannaþjónustu og starfsumhverfi starfsfólks í almannaþjónustu

 

Til hópsins komu eftirfarandi sérfræðingar með sín erindi:

 

Málefnahópur um jafnrétti og jöfnuð

Í málefnahópi um jafnrétti og jöfnuð er fjallað um

  • Fjölskylduvænna samfélag
  • Kynbundna og kynferðislega áreitni og ofbeldi á vinnustöðum
  • Málefni fólks af erlendum uppruna 
  • Fjölbreytileika á vinnumarkaði

 

Fyrirlesarar voru:

 

Málefnahópur um framtíðarvinnumarkaðinn

Í málefnahópi um framtíðarvinnumarkaðinn er fjallað um

  • Menntamál
  • Umhverfis- og loftslagsmál 
  • Atvinnumál

 

Fyrirlesarar voru

 

Önnur erindi haldin utan málefnahópanna

Þá voru haldnir þrír fyrirlestrar fyrir alla þingfulltrúa sem einnig er innlegg í málefnastarfið.


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?