Fyrstu kjarasamningarnir á opinberum markaði undirritaðir

Kjarasamningur 11 aðildarfélaga BSRB við Samband íslenskra sveitarfélaga undirritaður í húsnæði ríkissáttasemjara aðfaranótt fimmtudagsins 13. júní 2024.

Samninganefndir Sameykis og ríkisins undirrituðu í gærkvöld nýjan kjarasamning sem er sá fyrsti sem gerður er á opinberum markaði í þessari kjaralotu. Gildistími samningsins er frá 1. apríl 2024 til 31. mars 2028. Samið var sambærilegum nótum og á almennum markaði í vor.

Á öðrum tímanum í nótt undirrituðu samninganefndir 11 aðildarfélaga BSRB og Sambands íslenskra sveitarfélaga nýjan kjarasamning. Sá samningur felur í sér sambærilegar launahækkanir og gildir einnig frá 1. apríl 2024 til 31. mars 2028. Félögin sem samningurinn nær til eru:

  • Kjölur – stéttarfélag starfsmanna í almannaþjónustu
  • Félag opinbera starfsmanna á Austurlandi
  • FOSS - stéttarfélag í almannaþjónustu
  • Sameyki - stéttarfélag í almannaþjónustu
  • Starfsmannafélag Garðabæjar
  • Starfsmannafélag Húsavíkur
  • Starfsmannafélag Hafnarfjarðar
  • Starfsmannafélag Mosfellsbæjar
  • Starfsmannafélag Kópavogs
  • Starfsmannafélag Suðurnesja
  • Starfsmannafélag Vestmannaeyjabæjar

Í kjölfarið gengu samninganefndir Sameykis og Reykjavíkurborgar einnig frá kjarasamningi á grunni sömu forsenda.

Nýir kjarasamningar verða kynntir félagsfólki viðkomandi aðildarfélaga BSRB á næstu dögum.

Nú þegar fyrstu kjarasamningar á opinberum markaði hafa verið undirritaðir standa vonir til að lokið verði við gerð fleiri samninga á næstu dögum. Kjarasamningar hjá meginþorra félagsfólks aðildarfélaga BSRB hafa verið lausir frá 1. apríl 2024.


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?