Nýtt átaksverkefni Vinnueftirlitsins gegn kynferðislegri áreitni á vinnustöðum

Vinnueftirlitið stendur fyrir átakinu: Tökum höndum saman: Grípum til aðgerða gegn áreitni og ofbeldi í vinnuumhverfinu um þessar mundir

Vinnueftirlitið hefur sett af stað nýtt verkefni sem miðar að því að styðja vinnustaði í baráttunni gegn kynferðislegri áreitni. Verkefnið heitir Tökum höndum saman: Grípum til aðgerða gegn kynferðislegri áreitni og felur í sér hagnýtt fræðsluefni og verkfæri sem vinnustaðir geta nýtt sér til að bregðast við og vinna markvisst gegn slíku háttalagi.

Kynferðisleg áreitni hefur alvarleg áhrif á þá sem verða fyrir henni, en einnig á starfsanda og öryggi á vinnustöðum. Það er ábyrgð allra vinnustaða að tryggja öruggt starfsumhverfi þar sem allir njóta virðingar og mannréttinda. Með þessu verkefni vill Vinnueftirlitið styðja við þá vinnu með skýrum leiðbeiningum, fræðslu og aðgengilegum verkfærum.

Á vef verkefnisins má meðal annars finna:

  • Myndbönd og fræðsluefni

  • Skref-fyrir-skref leiðbeiningar fyrir vinnustaði

  • Dæmi um viðbragðsáætlanir

  • Ráðleggingar til stjórnenda, trúnaðarmanna og annarra 

 

BSRB fagnar þessu mikilvæga framtaki Vinnueftirlitsins og hvetur aðildarfélög sín og aðra vinnustaði til að kynna sér efnið og nýta það til að tryggja öruggt og heilbrigt vinnuumhverfi fyrir allt starfsfólk.

 

Kynntu þér verkefnið á síðu Vinnueftirlitsins

Hér má sjá nýjustu myndböndin um kynbundna áreitni og ofbeldi:


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?