Heildarsamtök launafólks taka undir yfirlýsingu Samtakanna 78 og hvetja stjórnvöld til að taka afgerandi stöðu gegn nýlegri tilskipun Donald Trump, forseta Bandaríkjanna, um tvö kyn. „Með tilskipuninni afneitar forsetinn tilvist trans og intersex fólks og gerir réttindi þeirra að engu, réttindi sem barist var ötullega fyrir í langan tíma," segir í yfirlýsingu ASÍ, BSRB, BHM og KÍ.
Þar segir ennfremur að framkoma, ákvarðanir og stefnumótun valdhafa erlendis geti haft alvarlegar afleiðingar og valdið bakslagi og mikilli afturför í jafnréttismálum. „Ef við veitum ekki viðspyrnu og sýnum hvers megnug við erum er voðinn vís."
Sameiginleg yfirlýsing ASÍ, BSRB, BHM og KÍ:
Mannréttindabrot verða ekki liðin
Framkoma, ákvarðanir og stefnumótun valdhafa erlendis geta haft alvarlegar afleiðingar og valdið bakslagi og mikilli afturför í jafnréttismálum, líka hér á landi. Ef við veitum ekki viðspyrnu og sýnum hvers megnug við erum er voðinn vís. Heildarsamtök launafólks styðja yfirlýsingu Samtakanna 78 og hvetja stjórnvöld til að taka afgerandi afstöðu gegn nýrri tilskipun Bandaríkjaforseta um tvö kyn. Með tilskipuninni afneitar forsetinn tilvist trans og intersex fólks og gerir réttindi þeirra að engu, réttindi sem barist var hatrammlega fyrir í langan tíma. Heildarsamtökin taka undir kröfu Samtakanna 78 um að íslensk stjórnvöld fordæmi tilskipun Bandaríkjaforseta og standi með hinsegin fólki á alþjóðavettvangi, ekki síst í Mannréttindaráði Sameinuðu þjóðanna. Ísland stendur framar en mörg önnur ríki þegar kemur að jafnréttismálum og réttindum hinsegin fólks og horft er til Íslands sem fyrirmyndar. Því fylgir ábyrgð sem stjórnvöld verða að standa undir. Skerðing mannréttinda og mannréttindabrot verða ekki liðin.