Árlega eru haldnir kynningarfundir fyrir virka sjóðfélaga í A- og B-deild LSR sem og Lífeyrissjóð hjúkrunarfræðinga. Sjóðfélagar skrá sig fyrirfram á fundina.
3. og 4. júní n.k. mun LSR halda kynningarfundi fyrir sjóðfélaga sem vilja fræðast um lífeyrismál; um uppbyggingu réttindakerfisins iðgjaldaskil, lífeyristökualdur og áætlaðar lífeyrisgreiðslur.
Hægt er að velja um tvær dagsetningar; þann 3. júní eða 4. júní. Fundir eru haldnir bæði að morgni til eða síðdegis: 8:30 – 10:00 eða 16:30 – 18:00.
Fundirnir eru haldnir í húsnæði LSR að Engjateigi 11.
Nauðsynlegt er að skrá sig fyrir 3. júní með því að hringja í síma 510-6100 eða senda tölvupóst á netfangið lsr@lsr.is og tilgreina nafn, kennitölu og val á tímasetningu.
Hægt er að senda spurningar, sem óskað er eftir að svarað verði á fundinum, á netfangið lsr@lsr.is.