Kvennaár 2025 hefst með krafti í Iðnó

Frá Kvennaverkfallinu 2023, stærsta útifundi Íslandssögunnar

Stundin er runnin upp! Þann 30. janúar verður upphafi Kvennaárs 2025 fagnað með partýi í Iðnó frá kl. 17:00 til 21:00. Markmiðið er að sameina kraftana, dansa, syngja og finna ofurkraftinn í samstöðu kvenna og kvára.

Hin eina sanna Margrét Maack mun stýra gleðinni og þeyta skífum. Léttar veitingar í boði. Öll sem vilja styðja baráttuna fyrir raunverulegu jafnrétti á Íslandi velkomin. Gott aðgengi.

 

Hvað er Kvennaár 2025?

Í ár eru liðin 50 ár frá Kvennafrídeginum, þegar konur á Íslandi lögðu niður launuð sem ólaunuð störf sín og stöðvuðu þannig samfélagið. Þrátt fyrir að hafa barist fyrir jafnrétti í hálfa öld búa konur enn við misrétti og ofbeldi.

Árið 2023 sýndi metþátttaka í Kvennaverkfallinu svo ekki verður um villst að þjóðin er tilbúin að taka næsta skref. Kvennaverkfallið náði til 21 staðar um landið og útifundurinn í Reykjavík var sá stærsti í Íslandssögunni.

Til að fylgja eftir þessum gríðarlega krafti hefur BSRB ásamt rúmlega 50 samtök femínista, kvenna, launafólks, fatlaðs fólks og hinsegin fólks tekið höndum saman og helga heilt ár baráttunni fyrir raunverulegu jafnrétti með fjölbreyttri dagskrá.

 

Vertu með frá byrjun!

Við byrjum Kvennaárið á því að hrista okkur saman í dansi og samstöðu. Saman leggjum við grunninn að breytingum á samfélaginu.

Sjáumst í Iðnó 30. janúar kl. 17:00!

Kröfur Kvennaárs má finna á kvennaar.is


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?