Hvenær náum við jafnrétti á vinnumarkaði?

Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB (t.h.), og Drífa Snædal, forseti ASÍ.

Til hamingju með daginn!

Á þessum degi fyrir 44 árum lögðu konur niður launuð sem ólaunuð störf til að sýna fram á mikilvægi vinnuframlags kvenna. Samstaða kvenna skilaði mikilvægum breytingum í átt að jafnrétti. En þrátt fyrir að samfélagið hafi breyst verulega á nærri hálfri öld er enn stór hópur kvenna sem býr við launakjör sem duga engan veginn til framfærslu, óásættanlegt starfsumhverfi, vanvirðingu á framlagi þeirra og of langa vinnuviku.

Í dag viljum við beina kastljósinu að stöðu þeirra kvenna sem veita þjónustu eða annast aðra einstaklinga í vinnunni og heima. Þær sinna mikilvægum störfum sem snerta okkur öll, börnin okkar, foreldra, ættingja og vini. Konur sem samfélagið gæti ekki verið án og vinnuframlag þeirra sem er svo mikilvægt að þær myndu setja samfélagið á hliðina ef þær legðu niður störf. Þetta eru til dæmis lægst launuðu störfin í okkar samfélagi, konur sem vinna við umönnun barna í leikskólum, grunnskólum og á frístundaheimilum.

Álag er almennt meira og vinnuskilyrði verri á vinnustöðum þar sem konur eru í meirihluta. Þar fyrir utan treystir um þriðjungur kvenna á vinnumarkaði sér ekki til að vera í fullu starfi, einkum vegna ábyrgðar á umönnun barna og fjölskyldumeðlima eða vegna þess að störfin eru svo erfið. Í samanburði við önnur Evrópulönd eru aðstandendur á Íslandi undir mestu álagi allra vegna umönnunar óvinnufærra ættingja, öryrkja eða aldraðra.

Það skyldi því engan undra að konur 50 ára og eldri eru stærsti hópurinn þegar fjölgun örorkulífeyrisþega er skoðuð. Það skilar samfélagi þar sem konur lifa að meðaltali 66 heilbrigð ár en meðalævilengdin er 84 ár. Karlar fá að jafnaði 71,5 heilbrigð ár en lifa að meðaltali 81 ár. Konur og karlar stóðu nærri jafnfætis hvað heilbrigði varðar fyrir efnahagshrunið en í kjölfar þess byrjaði að halla undan fæti. Tvímælalaust hafa niðurskurðaraðgerðir í velferðarkerfinu aukið álag bæði í vinnunni og heima. Lágu launin hafa ekki eingöngu áhrif á konur þegar þær eru á vinnumarkaði heldur út ævina enda réttindi þeirra í lífeyrissjóðum lægri.

Skakkt verðmætamat á framlagi kvenna

Nærri hálfri öld eftir fyrsta kvennaverkfallið er framlag kvenna til samfélagsins ekki að fullu metið að verðleikum. Kynskiptur vinnumarkaður er enn helsta ástæða kynbundins launamunar á Íslandi en þar hefur skakkt verðmætamat á vinnuframlagi kvenna mestu áhrifin. Skipulag vinnumarkaðar og samfélagsins skilar neikvæðum áhrifum á fjárhag, heilsu og líðan kvenna. Þvert á það sem margir telja þá kemur jafnrétti ekki af sjálfu sér heldur þarf að berjast fyrir því.

Það er kominn tími til að stjórnvöld og atvinnurekendur grípi til aðgerða til að stuðla að raunverulegu jafnrétti. Til dæmis með því að létta umönnunarbyrði kvenna vegna barna og ættingja og með því að beina stuðningi þangað sem hans er mest þörf. Útrýma þarf fátækt með því að hækka lægstu laun verulega og gera þá kröfu að konur geti lifað af grunnlaunum sínum. Við verðum að tryggja starfsumhverfi sem eyðileggur konur ekki fyrir aldur fram og stytta vinnuvikuna hjá öllu launafólki. Þannig byggjum við réttlátara og betra samfélag!

Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB

Drífa Snædal, forseti ASÍ


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?