Norræni Lýðháskólinn í Genf, Genfarskólinn er ætlaður virkum félagsmönnum í stéttarfélögunum. Gert er ráð fyrir því að umsækjendur hafi áhuga á alþjóðamálum verkalýðshreyfingarinnar. Æskilegt er að þeir hafi sótt fræðslustarf verkalýðshreyfingarinnar og þekki til starfsemi stéttarfélaganna og samtaka þeirra hér á landi.
Aðild að Genfarskólanum eiga MFA-samböndin í Svíþjóð, Noregi, Danmörku, Finnlandi og hér á landi.
Skólinn er haldinn samhliða Alþjóðavinnumálaþinginu í Genf og dregur nafn sitt af því. Nemendur kynnast þinghaldinu og Alþjóðavinnumálastofnuninni ILO. Stofnunin starfar að vinnumálum á vegum Sameinuðu þjóðanna. Fulltrúar á ILO-þinginu eru frá stjórnvöldum, atvinnurekendum og samtökum launafólks um allan heim. Þátttakendur kynnast norrænu samstarfi á vettvangi ILO og geta kynnt sér ýmis alþjóðasamtök verkalýðshreyfingarinnar sem starfa í tengslum við ILO.
Norræni Lýðháskólinn í Genf, Genfarskólinn, byrjar 16. apríl í Runö í Svíþjóð.
Að því loknu tekur við fjarnám sem stendur þar til þátttakendur fara út í lok maí.
Fornámskeið 16. – 19. apríl í Svíþjóð
Fjarnám er í apríl og maí
Aðalnámskeið 28. maí – 17. júní í Genf
Námið fer fram í formi fjarnáms, fyrirlestra, hópastarfs og þátttakendur fylgjast með fundum Alþjóðavinnumálaþingsins og nefndarstarfi þess. Nauðsynlegt er að umsækjandi hafi gott vald á einu norðurlandamáli og hafi auk þess góða enskukunnáttu.
Íslensku þátttakendurnir á Genfarskólanum hafa verið tveir undanfarin ár. Þeir hafa sótt fundi hér á landi, sem haldnir hafa verið til undirbúnings þátttöku í skólanum. Kynningarfundir verða haldnir í byrjun febrúar. Á kynningarfundinum munu þátttakendur hitta fulltrúa Íslands sem sækja ILO þingið, ásamt þátttakendum síðasta árs.
Sótt er um í gegnum heimasíðu skólans ásamt því að þar má fá allar upplýsingar. http://geneveskolan.org/index.php/is/
Umsóknarfrestur er til 31. janúar nk.