Haldið verður upp á 100 ára afmæli kosningaréttar íslenskra kvenna þann 19. júní næstkomandi. Í tilefni af afmælinu hafa atvinnurekendur jafnt á almennum vinnumarkaði sem og hjá ríki og sveitarfélögum verið hvött til að gefa starfsmönnum frí frá hádegi 19. júní, að því marki sem kostur er.
Þetta er gert svo að fólki gefist kostur á að taka þátt í skipulögðum hátíðahöldum sem áformuð eru þennan dag. Þegar hefur Reykjavíkurborg gefið það út að allir starfsmenn borgarinnar fái frí eftir hádegi þann 19. maí og fleiri sveitarfélög hafa gert það sama.
BSRB tekur undir þá hvatningu og því verður skrifstofa BSRB lokuð frá kl. 12 þann 19. júní svo að starfsmenn geti tekið þátt í skipulögðum hátíðahöldum vegna 100 ára afmælis kosningaréttar íslenskra kvenna.