Framkvæmdastjórn Sjúkraliðafélags Íslands samþykkti eftirfarandi ályktun á fundi sínum fyrir helgina:
„Um leið og framkvæmdastjórn Sjúkraliðafélags Íslands tekur undir gagnrýni fagdeildar heilsugæsluhjúkrunarfræðinga um fyrirhugaðan niðurskurð hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, vill stjórnin mótmæla þeirri rangtúlkun sem fram kemur í ályktuninni, að hjúkrunarfræðingar einir beri uppi alla heimahjúkrun heilsugæslunnar.
Hjá Heilsugæslunni starfa tugir sjúkraliða sem sinna hjúkrun í heimahúsum vítt og breytt um borgina.
Án þeirra legðist heimahjúkrunin að stórum hluta niður. Menntun sjúkraliða nýtist mjög vel við þessi störf enda hefur þeim farið fjölgandi ár frá ári.“