Í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna 8. mars bjóða ASÍ, BHM, BSRB, Jafnréttisráð, Jafnréttisstofa, Kennarasamband Íslands og Kvenréttindafélag Íslands til hádegisverðarfundar 5. mars kl. 12 til 13 á Grand hótel. Yfirskrift fundarins er: Baráttan heldur áfram! Kjarajafnrétti og ný jafnréttislög.
Dagskrá fundarins verður eftirfarandi:
- Kerfislæg mismunun kynjanna – geta jafnréttislög rétt við kynbundið gildismat samfélagsins? - Brynhildur Flóvenz, dósent við lagadeild HÍ.
- Skylda til launajafnréttis - Dagný Ósk Aradóttir Pind, lögfræðingur BSRB.
- Kyn, völd, og verkó - Drífa Snædal, forseti ASÍ.
Fundarstjóri verður Þórunn Sveinbjarnardóttir, formaður BHM.
Aðgangur er ókeypis en fundargestir geta keypt súpu og brauð fyrir 2.800 kr. Vegan kostur er í boði.
Nánari upplýsingar og skráning fer fram á Facebook-viðburði fundarins.