Þing BSRB í byrjun október

Vegna sóttvarnaraðgerða var 46. þing BSRB tvískipt. Þing um afmarkaða þætti var haldið í gegnum fjarfundarbúnað í september 2021 en þingfulltrúar komu saman í mars 2022 á framhaldsþingi og þá fór til að mynda stefnumótunarvinna fram.

47. þing BSRB fer fram í byrjun október á Hótel Nordica í Reykjavík. Þing bandalagsins eru haldin þriðja hvert ár og fara þau með æðsta vald í öllum málum BSRB. Þingið tekur til umfjöllunar öll þýðingarmikil málefni og mótar stefnu BSRB. Þá er kosið í helstu embætti bandalagsins á þingum þess.

Þingfulltrúar fá sendar upplýsingar um hvernig hægt er að nálgast gögn og taka þátt í þinginu með rafrænum hætti þegar nær dregur þingi. Nánari upplýsingar geta þingfulltrúar fengið hjá sínum stéttarfélögum.




Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?