Réttlát umskipti í loftslagsmálum

Sonja Ýr Þorbergsdóttir formaður BSRB, Drífa Snædal forseti ASÍ og Þórunn Sveinbjarnardóttir formaður BHM.

Baráttan gegn hamfarahlýnun er brýnasta umhverfis-, samfélags- og efnahagsmál samtímans. Þess vegna hafa samtök launafólks í Norræna verkalýðssambandinu og Þýska alþýðusambandinu sameinað krafta sína og unnið að tillögum um réttlát umskipti til kolefnislauss samfélags. Tillögurnar birtast í skýrslum þar sem fjallað verður um stöðuna á Norðurlöndunum og í Þýskalandi og var sú íslenska kynnt í dag.

Samtök launafólks lýsa yfir stuðningi við loftslagsmarkmið stjórnvalda en leggja áherslu á að árangri verði ekki náð nema með réttlátum umskiptum. Til að sátt náist í samfélaginu um þær mikilvægu breytingar sem þarf að gera verður að tryggja afkomu- og atvinnuöryggi launafólks og leggja áherslu á góð og græn störf.

Réttlát umskipti

Með réttlátum umskiptum vörðum við leiðina að öruggari framtíð núlifandi og komandi kynslóða og tryggjum sanngjarna skiptingu kostnaðar og ávinnings á leið okkar að kolefnishlutlausu hagkerfi. Nauðsynlegar kerfisbreytingar verða að grundvallast á félags- og umhverfisvernd og taka tillit til stafrænnar þróunar, sjálfvirknivæðingar og lýðfræðilegrar þróunar. Þær munu hafa áhrif á framleiðsluferla, neyslu og vinnumarkað.

Á Íslandi er stéttarfélagsaðild almenn, atvinnuþátttaka mikil og atvinnustig að jafnaði hátt. Ef fleiri störf tapast en verða til, ef atvinnuöryggi minnkar og hlutfall láglaunastarfa eykst á kostnað annarra starfa mun það hafa í för með sér aukinn tekjuójöfnuð og grafa undan samfélagslegri einingu og velmegun. Íslensk stjórnvöld þurfa því að vinna markvisst að því að móta hagkerfi fyrir framtíðina með stefnu í atvinnumálum og tengja hana við menntun, færni, vinnumarkaðinn, tæknibreytingar og nýsköpun. Einnig þarf að móta fjárfestingarstefnu fyrir lágkolefnishagkerfi og nýta skatta- og tekjutilfærslukerfin með jöfnuð að leiðarljósi. Í stefnu um sjálfbært, grænt hagkerfi verður að leggja áherslu á að skapa góð störf, öfluga almannaþjónustu og trygga afkomu.

Stjórnvöld þurfa að vera skipulögð og fumlaus í aðgerðum og forðast að láta markaðinn einan ráða ferðinni því markaðurinn er blindur á félagslegar afleiðingar og getur því dýpkað ójöfnuðinn sem þegar er til staðar. Með réttlátum umskiptum, áherslu á samvinnu, þekkingu og afdráttarlausar aðgerðir geta stjórnvöld tekist á við þessar áskoranir og óvissu þeim tengdum.

Verkalýðshreyfingin á að hafa sæti við borðið

Réttlát umskipti byggja á samvinnu og lýðræðislegu samráði þar sem staða launafólks og almennings alls þarf að vera í forgrunni. Aðgangur verkalýðshreyfingarinnar að ákvörðunum er varða loftslagsstefnu Íslands er í dag mjög takmarkaður og nauðsynlegt er að formgera hlutverk hreyfingarinnar í mótun stefnu um réttlát umskipti. Í ljósi mikilvægis loftslagsmála og réttlátra umskipta er nauðsynlegt að koma á virku samstarfi til að tryggja árangursríkar kerfisbreytingar til að draga úr losun, samfélagslega einingu og velmegun. ASÍ, BHM og BSRB leggja því til að slíkur vettvangur sem myndaður sem fyrst sem fái það hlutverk að leggja grunninn að stefnu um réttlát umskipti á Íslandi.

Drífa Snædal forseti ASÍ
Sonja Ýr Þorbergsdóttir formaður BSRB
Þórunn Sveinbjarnardóttir formaður BHM

Greinin birtist fyrst á Vísi.


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?