Yfirlýsing BHM og BSRB vegna kjarasamnings Samtaka fyrirtækja á veitingamarkaði

Sonja Ýr Þorbergsdóttir formaður BSRB og Kolbrún Halldórsdóttir formaður BHM

BHM tekur undir gagnrýni Eflingar, Einingar-Iðju og Alþýðusambands Íslands ásamt öðrum stéttarfélögum innan þeirra vébanda varðandi gervistéttarfélagið „Virðingu“. Félögin hafa bent á að atvinnurekendur í veitingarekstri, Samtök fyrirtækja á veitingamarkaði – SVEIT, hafi stofnað stéttarfélag fyrir starfsfólk á veitingamarkaði. Slík ráðstöfun gengur gegn grundvallarreglum á vinnumarkaði, þar sem það er launafólkið sjálft sem stofnar sín stéttarfélög.

Þegar eru í gildi kjarasamningar um öll störf á veitingahúsum. Þar eru ákvæði um kjör og réttindi sem hafa náðst með áratugalangri baráttu launafólks. Það er ámælisvert að stéttarfélag fyrirtækja á veitingamarkaði skuli hafa samið slík réttindi burt með einu pennastriki til hagsbóta fyrir atvinnurekendur. Þar er meðal annars um að ræða verri launakjör, lakari orlofsrétt og uppsagnarrétt o.fl. eins og sjá má á samanburði Einingar-Iðju:

 

 

Þá er félagsgjald í gervistéttarfélagið sambærilegt við félagsgjald í önnur stéttarfélög. Engu að síður virðist félagsfólk þess ekki ávinna sér sambærileg réttindi í sjúkrasjóði eða rétt til fræðslustyrkja eða annarra styrkja.

Það er forkastanlegt að atvinnurekendur skuli grafa með þessum hætti undan réttindum launafólks í eiginhagsmunaskyni. Slíkt hefur ekki bara neikvæð áhrif á réttindi launafólks heldur rýrir einnig stöðu atvinnurekenda sem vilja standa heiðarlega að rekstri fyrirtækja sinna. Starfsfólk á veitingahúsum er að stórum hluta ungt fólk og fólk af erlendum uppruna, sem mikilvægt er að eigi málssvara í öflugu stéttarfélagi sem hefur burði til að standa vörð um réttindi þess

 
 
 
 

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?