Enn færist þungi í verkföll BSRB. Þar sem ekki hefur náðst að semja bætist starfsfólk sundlauga og íþróttamiðstöðva á Vestur-, Norður-, og Austurlandi við hópinn sem þegar hefur lagt niður störf. Um helgina verður fjöldi þeirra sem taka þátt í verkfallsaðgerðum BSRB því orðinn í kringum 1700 og sveitarfélögin orðin átján sem áhrifa gætir.
Skæruverkföll verða hjá starfsfólki vinsælla sundlauga ogíþróttamiðstöðva, til að mynda í Borgarbyggð og á Akureyri, og munu þær að öllum líkindum loka dyrum sínum fyrir gestum um Hvítasunnuhelgina. Ef samningar nást ekki fyrir 5. júní bætast við sundlaugar og íþróttamiðstöðvar í enn fleiri sveitarfélögum allt þar til samningar nást.
Starfsfólk eftirfarandi sundlauga og íþróttamannvirkja leggur niður störf um Hvítasunnuhelgina:
Akureyrarbær
- Sundlaug Akureyrar
- Sundlaug Glerárskóla (Íþróttamiðstöð Glerárskóla)
- Íþróttamiðstöðin í Hrísey, sundlaug og líkamsrækt
Dalvíkurbyggð
- Íþróttamiðstöð - Sundlaug Dalvíkur
Fjallabyggð
- Sundlaugin í Ólafsfirði og íþróttamiðstöð Fjallabyggðar í Ólafsfirði
- Sundhöllin á Siglufirði og íþróttamiðstöð Fjallabyggðar á Siglufirði
Skagafjörður
- Sundlaugin í Varmahlíð og Íþróttahúsið Varmahlíð
- Sundlaug Sauðárkróks við Skagfirðingabraut og Íþróttahús Sauðárkróks
- Sundlaugin á Hofsósi
Fjarðabyggð
- Stefánslaug Neskaupstað
Borgarbyggð
- Sundlaugin og íþróttamiðstöðin Borgarnesi
Snæfellsbær
- Sundlaug Snæfellsbæjar
- Íþróttahús Snæfellsbæjar
Vesturbyggð
- Brattahlíð, sundlaug Patreksfirði