Samkomulag hefur náðst við Samband íslenskra sveitarfélaga og Reykjavíkurborg um framhald kjaraviðræðna. Eins og í samkomulagi sem gert var við ríkið er kveðið á um að launagreiðendur greiði félagsmönnum aðildarfélaga BSRB 105 þúsund króna innágreiðslu þann 1. ágúst næstkomandi.
Greiðslan er til komin vegna tafa sem orðið hafa á gerð kjarasamninga. Í nýjum viðræðuáætlunum kemur fram að stefnt sé að því að ljúka nýjum kjarasamningin fyrir 15. september, en samningar flestra aðildarfélaga BSRB hafa verið lausir frá byrjun apríl.
Í samningaviðræðum við ríkið, Samband íslenskra sveitarfélaga og Reykjavíkurborg hefur verið unnið að samkomulagi um útfærslu á styttingu vinnuvikunnar, launaþróunartryggingu og fleira og leggur bandalagið áherslu á að þessi flóknu mál verði unnin faglega.
Í endurskoðaðri viðræðuáætlun við ríkið kemur fram að þar sem langt sé síðan kjarasamningar hafi runnið út verði greidd innágreiðsla inn á nýja samninga, 105 þúsund krónur. Upphæðin greiðist hlutfallslega miðað við starfstíma og starfshlutfall á tímabilinu frá og með 1. apríl 2019 til og með 30. júní 2019. Samskonar ákvæði eru í endurskoðuðum áætlunum vegna samninga við Samband íslenskra sveitarfélaga og Reykjavíkurborg sem aðildarfélög BSRB hafa undirritað, eða munu undirrita á næstu dögum.
Þar er einnig kveðið á um friðarskyldu til 15. september og að stutt hlé verði gert á viðræðum á meðan skrifstofa Ríkissáttasemjara er lokuð í sumar, enda hefur reynslan sýnt að lítið hefur gengið í kjaraviðræðum yfir hásumarið.