Forsvarmenn BSRB áttu fyrr í dag fyrsta fund sinn með samninganefnd ríkisins (SNR) vegna komandi kjarasamningsviðræðna. Farið var yfir drög að viðræðuáætlun samningsaðila auk þess sem BSRB fór yfir þau verkefni sem bandalaginu hafa verið falin af aðildarfélögum sínum í tengslum við gerð kjarasamninga. Þar á meðal eru málefni vaktavinnufólks, málefni trúnaðarmanna og önnur sameiginlega mál aðildarfélaganna.
„Aðildarfélögin fólu BSRB að gera viðræðuáætlun sem gerir ráð fyrir að nýir kjarasamningar verði tilbúnir þegar hinir renna út. Við höfum lagt áherslu á að sú viðræðuáætlun byggi á þeirri vinnu sem aðilar vinnumarkaðarins fóru í undir handleiðslu ríkissáttasemjara og miðaði að því að stuðla að bættum vinnubrögðum við gerð kjarasamninga,“ segir Elín Björg Jónsdóttir formaður BSRB sem leggur áherslu á að nýir kjarasamningar verði tilbúnir þegar núgildandi samningar renna út.
„Það er okkur mikilvægt að kjarasamningur taki beint við af kjarasamningi svo samningar verði ekki lausir til lengri eða skemmri tíma. Einnig fórum við fram á að samningaviðræður við BSRB um sameiginlegu málin færu fram samhliða viðræðum við aðildarfélög okkar,“ segir Elín Björg en aðildarfélög BSRB fara sjálf með samningsumboðið utan þeirra verkefna sem eru þeim sameiginleg og hafa verið falin bandalaginu eins og fyrr hefur komið fram.
„Stjórn BSRB kemur saman til fundar á föstudag og við væntum þess að hafa fengið viðbrögð við viðræðuáætlun okkar frá samninganefndinni fyrir þann tíma. Stjórn BSRB mun þá taka hana til efnislegrar umræðu og í kjölfarið ákveða næstu skref,“ segir Elín Björg.