BSRB, BHM og Kennarasambandið standa sameiginlega fyrir fundi um endurmat á virði kvennastarfa þann 5. október kl. 9-12. Viðburðurinn fer fram á Hilton Reykjavik Nordica og er öllum opinn meðan húsrúm leyfir en honum verður einnig streymt. Boðið verður upp á léttan morgunverð frá kl. 8:30.
Streymi frá fundinum má nálgast hér að neðan og á facebooksíðu BSRB.
DAGSKRÁ
Verðmætamat, viðmið og gildi
Sóley Tómasdóttir, kynja- og fjölbreytileikafræðingur hjá Just Consulting
Verðmætamat kvennastarfa, kynning á vinnu starfshóps um endurmat á virði kvennastarfa
Heiður Margrét Björnsdóttir, formaður starfshóps um endurmat á störfum kvenna og hagfræðingur BSRB
Hvað felst í virðismati starfa?
Helga Björg Ragnarsdóttir, framkvæmdastýra Jafnlaunastofu
Konur búa enn við launamisrétti 60 árum eftir að launajafnrétti var leitt í lög. Íslenskar og erlendar rannsóknir sýna að kynskiptur vinnumarkaður er ein helsta skýringin á launamuni kynjanna. Síðustu ár hefur ýmislegt áunnist í vinnu gegn kynbundnum launamun en áherslan hefur almennt verið á að leiðrétta launamun innan vinnustaðarins líkt og með jafnlaunavottun en ekki þvert á vinnustaði sem heyra undir sama atvinnurekanda. Fram til þessa hefur því lítil sem engin áhersla verið lögð á að vinna gegn launamun sem stafar af kynskiptum vinnumarkaði. Fjölmargar erlendar rannsóknir sýna að ein skilvirkasta aðgerðin til að stuðla að jöfnum launum fyrir jafnverðmæt störf felst í virðismati starfa. Konur og karlar vinna ólík störf á ólíkum vinnustöðum og því er næsta skref að útvíkka samanburðinn til að meta megi heildstætt virði ólíkra starfa sem heyra undir sama atvinnurekanda en unnin eru á mismunandi vinnustöðum.
Starfshópur forsætisráðherra, sem BSRB, BHM og KÍ áttu sæti í, um endurmat á störfum kvenna skilaði tillögum til aðgerða til að útrýma launamun sem stafar af kynskiptum vinnumarkaði fyrir ári síðan. Í kjölfar tillagnanna skipaði forsætisráðherra aðgerðahóp um launajafnrétti, sem samtök launafólks á einnig sæti í, sem hefur það hlutverk að byggja upp þekkingu, prufa sig áfram í nýjum leiðum að virðismati og búa til verkfæri til að leiðrétta skakkt verðmætamat kvennastarfa á grundvelli tillagnanna. Aðgerðarhópurinn hefur hafið störf og vinnur um þessar mundir að þróunarverkefni um endurmat á virði kvennastétta. Markmið fundarins er að miðla áfram þeirri þekkingu sem nú er fyrir hendi og í framhaldinu eftir því sem þekkingin dýpkast.