Innleiðing breyttrar persónuverndarlöggjafar hjá hinu opinbera er efni málþings sem Háskólinn á Bifröst og Fræðslusetrið Starfsmennt standa sameiginlega að í BSRB-húsinu við Grettisgötu 89 næstkomandi föstudag, 15. mars.
Málþingið er ætlað núverandi og tilvonandi starfsmönnum hjá ríki og sveitarfélögum og er innlegg í opinbera umræðu um löggjöfina út frá sjónarhorni stjórnsýslunnar og siðfræðinnar. Það er einnig hluti af nýju diplómanámi á grunnstigi háskóla sem Háskólinn á Bifröst og Starfsmennt settu á fót haustið 2018.
Námið miðar að því að veita núverandi og tilvonandi starfsmönnum hins opinbera hagnýta þjálfun og fræðilega undirstöðu sem nýtast í starfi. Sett hefur verið saman heildstæð námsleið til BA prófs í opinberri stjórnsýslu og geta áhugasamir kynnt sér betur báðar námsleiðir, það er diplómanámið og BA námið, á málþinginu.
Nauðsynlegt er að skrá sig í málþingið. Skráning fer fram á vef Starfsmenntar.
Dagskrá:
- 12:45: Húsið opnar - kaffi
- 13:00: Setning málþings
- 13:10: Innleiðing breyttrar löggjafar – reynslusögur frá sveitarfélagi og ríkisstofnun – Telma Halldórsdóttir, persónuverndarfulltrúi Garðabæjar og Hólmar Örn Finnsson, persónuverndarfulltrúi hjá embætti landlæknis
- 14:00: Kynning á námsleið í opinberri stjórnsýslu til diplóma og BA gráðu – Dr. Sigrún Lilja Einarsdóttir, dósent við félagsvísinda- og lagadeild Háskólans á Bifröst
- 14:15 :Kaffihlé
- 14:30: Persónuverndarlögin með augum siðfræðinnar – Elsa Haraldsdóttir, doktorsnemi í heimspeki og stundakennari við Háskólann á Bifröst
- 15:30: Pallborðsumræður og málþingsslit