Fáðu fréttabréf BSRB í tölvupósti

Það er alltaf mikið af spennandi verkefnum í gangi hjá BSRB og mörg stór mál sem unnið er í hverju sinni. Í takti við nýja tíma hefur bandalagið dregið úr útgáfu á prentuðum blöðum. Þess í stað sendum við mánaðarlega frá okkur rafræn fréttabréf með upplýsingum um það helsta sem er í gangi hjá bandalaginu.

BSRB beitir sér fyrir ýmsum mikilvægum málefnum sem varða félagsmenn aðildarfélaga bandalagsins miklu. Til dæmis má þar nefna atvinnumál, efnahagsmál, heilbrigðismál, húsnæðismál, jafnréttismál og fleira.

Nú getur þú á auðveldan hátt fylgst með framgangi þessara mikilvægu mála, auk allra hinna málanna sem skipta ekki minna máli, með því að skrá þig á póstlista BSRB. Skráningin fer fram í gegnum Facebook-síðu bandalagsins, en ekki er nauðsynlegt að nota Facebook til að skrá sig á póstlistann.

Þeir sem vilja fylgjast með starfsemi bandalagsins ættu einnig að fylgjast með Facebook-síðunni okkar og muna að fylgja síðunni.


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?