BRSB og Alþýðusamband Íslands hafa stofnað rannsóknarstofnun í vinnumarkaðsfræðum til að efla rannsóknir á sviði vinnumarkaðar, félags- og efnahagsmála. Stofnuninni er ætlað að dýpka umræðuna um kaup og kjör og koma þannig með aukið fóður inn í baráttu launafólks fyrir bættri afkomu og betri lífsskilyrðum. Hún verður þverfagleg og sjálfstæð í sínum störfum.
ASÍ og BSRB óska eftir tillögum um nafn á stofnunina. Nafnið þarf að vera þjált í notkun og gefa stofnuninni jákvæða ímynd.
Tillögum um nafn þarf að skila inn fyrir 16. desember 2019 á netfangið asi@asi.is. Frjálst er að senda inn fleiri en eina tillögu.
Veitt verða 50.000 króna verðlaun fyrir bestu tillöguna. Ef fleiri en einn leggja til vinningsnafnið verður vinningshafinn dreginn út.