FOSS semur við ríkið

FOSS, Félag opinberra starfsmanna á Suðurlandi, skrifaði í gær undir nýjan kjarasamning við ríkið. Samningurinn nær til félagsmanna FOSS sem starfa hjá ríkinu. Kjarasamningurinn er sambærilegur þeim sem önnur bæjarstarfsmannafélög BSRB hafa gert við ríkið á síðustu dögum.

Samningurinn felur m.a. í sér launahækkun að lágmarki 2,8%, 14.600 kr. eingreiðslu við upphaf samnings og aðra eingreiðslu þann 1. febrúar 2015 að upphæð 20.000 kr. miðað við fullt starf. Þá hækkar persónu- og desemberuppbót umtalsvert en samningurinn gildir frá 1. mars 2014 til 30. apríl 2015.

Helstu atriði samningsins eru:

  • að laun hækki um 2,8% eða að lágmarki 8000. kr. fyrir dagvinnu miðað við fullt starf. Á launum sem eru lægri en 230.000 kr. á mánuði komi sérstök hækkun til viðbótar að upphæð 1.750 kr.
  • við samþykkt samningsins greiðist 14.600 kr. eingreiðsla miðað við fullt starf í febrúar 2014 en hlutfallslega m.v. starfstíma og starfshlutfall í sama mánuði þar sem það á við.
  • eingreiðsla 20.000 kr. miðað við þá sem eru í fullu starfi í febrúar 2015 greiðist þann 1. apríl 2015 en hlutfallslega m.v. starfstíma og starfshlutfall í sama mánuði.
  • persónuuppbót verður á samningstímanum 73.600 kr.
  • orlofsuppbót verður á samningstímanum 39.500 kr.
  • samningurinn mun gilda frá 1. mars 2014 til 30. apríl 2015

Samningurinn verður kynntur félagsmönnum á næstu dögum og í kjölfarið bornir undir atkvæði


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?