![Nýtt starfsmat skilar 3,3% meðalhækkun launa](/static/news/sm/nytt-starfsmat-skilar-33-medalhaekkun-launa.jpg)
Nýtt starfsmat skilar 3,3% meðalhækkun launa
"Það er mikill áfangi og ánægjuefni að endurskoðun starfsmatsins sé lokið enda hefur þessi vinna staðið yfir í langan tíma. Mestu skiptir að hún skilar yfirgnæfandi meirihluta okkar félagsmanna hækkun launa en hún er að jafnaði um 3,3%," segir Arna Jakobína Björnsdóttir, formaður Kjalar - stéttarfélags starfsmanna í almannaþjónustu, um endurskoðun starfsmatskerfis sveitarfélaganna sem nú liggur fyrir. Breytingarnar þýða að laun fjölmargra félagsmanna aðildarfélaga BSRB sem semja við sveitarfélögin muni hækka samkvæmt endurskoðuðu starfsmatskerfi.
02. júl 2015