Auðvelt er að skera úr um hvort frumvarp um breytingar á lífeyrissjóði opinberra starfsmanna endurspeglar rétt það samkomulag sem gert var við ríki og sveitarfélög, skrifar Elín Björg Jónsdóttir, formaður BSRB, í aðsendri grein sem Fréttablaðið birti í dag.
Þar bendir hún á að heildarsamtök opinberra starfsmanna eru fráleitt að koma fram með nýjar samningskröfur, eins og haft var eftir fjármálaráðherra í Morgunblaðinu. Þvert á móti er aðeins verið að fara fram á að áunnin réttindi allra sjóðfélaga séu varin, en það er einmitt eitt af helstu markmiðunum með samkomulaginu.
Lesa má grein Elínar Bjargar á vef Vísis, en hún er endurbirt í heild sinni hér að neðan.
Auðvelt að sjá það sanna
Í flóknum málum getur verið erfitt að sjá hverjir segja satt og rétt frá. En stundum er það furðu auðvelt. Þannig er það með deilurnar um frumvarp sem breyta á lífeyriskerfi opinberra starfsmanna.
BSRB undirritaði, ásamt öðrum heildarsamtökum opinberra starfsmanna, samkomulag um nýtt lífeyriskerfi við ríki og sveitarfélög þann 19. september síðastliðinn. Bandalagið gerir alvarlegar athugasemdir við frumvarp sem byggir á því og telur frumvarpið ekki endurspegla það samkomulag sem var undirritað. Undir það taka hin heildarsamtökin sem undirrituðu samkomulagið.
Fjármálaráðherra hefur fullyrt að bandalög opinberra starfsmanna séu nú að bæta við nýjum samningskröfum. Ekkert gæti verið fjær sannleikanum. BSRB stendur fullkomlega við samkomulagið og myndi fagna því verði frumvarp þar sem efni þess endurspeglast með réttum hætti samþykkt.
Hér stangast fullyrðingar á og einhver gæti haldið að erfitt væri að skera úr um réttmæti fullyrðinganna. Það auðveldar vissulega þeim vinnuna sem vilja kanna sannleiksgildið að fyrir liggur skriflegt samkomulag, auk kynningarefnis sem fjármálaráðherra fór yfir á fundi með fjölmiðlum eftir undirritun samkomulagsins.
Í samkomulaginu eru markmið og forsendur tíunduð í upphafi: „Réttindi núverandi sjóðfélaga í A-deildum LSR og Brúar verði jafn verðmæt fyrir og eftir þær breytingar á skipan lífeyrismála sem kveðið er á um í samkomulagi þessu.“ Orðalag í kynningu ráðherra var svo til orðrétt það sama.
Í frumvarpinu er þetta markmið ekki uppfyllt. Í stað þess að tala um sjóðfélaga, sem nær yfir bæði þá sem eru að greiða í lífeyrissjóðinn, hafa greitt í hann, eða hafa hafið töku lífeyris, er komið nýtt hugtak. Í frumvarpinu er talað um „virka greiðendur“, sem eru aðeins þeir sem greiddu í sjóðinn á yfirstandandi ári.
Stjórnvöld standi við samkomulagið
Það þarf ekki lögspeking til að átta sig á muninum á þessu tvennu. Svo því sé haldið til haga gerði BSRB skriflegar athugasemdir við þetta orðalag í tölvupósti til ráðuneytisins þann 11. september, án þess að við því væri brugðist.BSRB gerir þá skýru kröfu að úr þessu verði bætt áður en málið verður afgreitt á Alþingi og að tekið verði að fullu tillit til athugasemda í umsögn bandalagsins við frumvarpið. Það er lágmarkskrafa að stjórnvöld standi við skriflegt samkomulag.
Þá má minna á að í allri umræðu í aðdraganda samkomulagsins var talað um að ekki yrði haldið áfram með málið nema allir væru sammála. Hvers vegna hefur það breyst á síðustu metrunum?