BSRB óskar félagsmönnum sínum og landsmönnum öllum gleðilegrar hátíðar og gæfu á komandi ári með þökkum fyrir samstarfið á liðnu ári.
Líkt og undanfarin ár sendir BSRB ekki út jólakort en styrkir Mæðrastyrksnefnd þess í stað.
Skrifstofa BSRB verður lokuð yfir stórhátíðardagana en opin venju samkvæmt þess á milli. Þannig verður skrifstofan opin 29. og 30. desember milli kl. 9 til 16. Skrifstofan mun svo opna kl. 9 föstudaginn 2. janúar.
Með óskum um gleðileg og gæfurík jól,
Starfsfólk BSRB.